Back to All Events

Ávaxtakarfan

Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta íslenska barnaleikrit allra tíma.

Sýningin hefur hlotið einróma lof sýningargesta og virðast aldnir jafnt sem ungir skemmta sér afar vel.

Leikarahópinn skipar einvala lið og er óhætt að segja að þar sé að finna marga af efnilegustu leikurum þjóðarinnar.

Gói leikstýrir hópnum styrkri hendi, Þorvaldur Bjarni sér um tónlistina einsog áður og Chantelle Carey sér um dansa og sviðshreyfingar.

Höfundur handrits er Kikka K. M. Sigurðardóttir.

Listrænir Stjórnendur:

Leikstjórn: Gói Karlsson

Höfundur tónlistar og Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Leikmynda- og búningahönnuðir: Eva Signý Berger og Alexía Rós Gylfadóttir

Leikmyndasmiður: Svanhvít Thea Árnadóttir

Ljósahönnuður: Freyr Vilhjálmsson

Danshöfundur: Chantelle Carey

Leikgervi: Margrét R Jónasar

Framleiðandi: Þorsteinn Stephensen

Chantelle Carey danshöfundur:

Í vinnu minni með ungum dönsurum og listamönnum hef ég veitt því athygli hve miklar mætur þau hafa öll á ávaxtakörfunni þannig að ég er ótrúlega spennt fyrir að taka þátt í þessari uppfærslu með frábæru hæfileikafólki.

Kikka K. M. Sigurðardóttir, höfundur Ávaxtakörfunnar:

"Mér finnst frábært að nýtt fólk sé að setja Ávaxtakörfuna á svið en ekki ég og listrænir

stjórnendur sem ég vinn venjulega með. Ég hef venjulega verið framleiðandi líka en er það

ekki núna og er mjög spennt að sjá útkomuna".

Kaupa miða
Earlier Event: November 13
Sammy Obeid: Northern Lit in Iceland!
Later Event: November 30
Ávaxtakarfan